
Vinnan þín. Sólin okkar.
Blue Paradise er coliving-hús fyrir fólk í fjarvinnu, uppi í hlíðinni fyrir ofan Santa Cruz de Tenerife. Sama klukka og heima yfir veturinn, beint flug frá Keflavík og skrifborð með útsýni yfir Atlantshafið.
Sama klukka og heima
Kanaríeyjar eru á UTC+0 frá lokum október fram í lok mars — nákvæmlega sama tímabelti og Ísland. Morgunfundurinn er áfram klukkan níu.
5½ tími frá Keflavík
Beint flug til Tenerife South. Keflavíkurflugvöllur gefur upp fimm og hálfa klukkustund á leiðinni.
Engin vegabréfsáritun
Ísland er í EES og Schengen, svo þú mátt koma og vinna strax. Skráning hjá spænskum yfirvöldum á fyrst við fari dvölin yfir þrjá mánuði.
Yfir 300 sólardagar
Santa Cruz liggur í sínu eigin örloftslagi austan megin á eyjunni: hlýrra, þurrara og sólríkara en norðurhlutinn.
Skammdegið er valkvætt
Þegar styst er í Reykjavík kemur sólin upp rétt fyrir hálftólf og sest aftur hálffjögur. Rúmar fjórar klukkustundir af birtu, og megnið af þeim situr þú inni við skjá.
Sama dag í Santa Cruz vaknarðu í björtu, borðar hádegismatinn úti og átt eftir heilan eftirmiðdag þegar vinnudagurinn klárast.
Þetta er ekki frí. Þú vinnur sömu vinnuna, fyrir sama vinnuveitanda, á sama tíma dags. Það eina sem breytist er hvað er fyrir utan gluggann — og hvað þú gerir þegar þú lokar tölvunni.


Vinnuaðstaða sem heldur heilum vinnudegi
Húsið er byggt utan um fólk sem vinnur í alvöru á netinu, ekki utan um kaffihúsavinnu í nokkra tíma.
- Tvö coworking-rými fylgja dvölinni: hæðarstillanleg skrifborð, stórir skjáir, vinnuvænir stólar, hratt net og útsýni yfir hafið.
- Í hverju herbergi er líka skrifborð og skjár á ljósleiðara, svo þú getur lokað að þér þegar dagurinn er þéttur.
- Sérbaðherbergi fylgir hverju herbergi og rólegri horn eru til fyrir símtöl og fundi.
Og svo þegar þú lokar tölvunni

Laugin og garðurinn
Sundlaugin, garðurinn og æfingaveröndin snúa út að borginni og höfninni. Flestir enda daginn þar.

Húsið og fólkið
Sjö herbergi, ekki hundrað. Sameiginlegir kvöldverðir þegar fólk er heima, og íbúar alls staðar að úr Evrópu.
Miðbær Santa Cruz er í göngufæri, Anaga-fjöllin í stuttum bíltúr og ströndin við Las Teresitas þar rétt hjá.
Vetrarverð, nóvember til mars
Frá 695 € á mánuði
fyrir einn í herbergi — hér að neðan sérðu hvað fylgir
- Lágmarksdvöl yfir háannatímann, nóvember til mars, er einn mánuður.
- 30 € afsláttur á mánuði frá og með öðrum mánuði.
- Bæði coworking-rýmin fylgja dvölinni, án aukagjalds.
- Sameiginleg rými eru þrifin tvisvar í viku, og herbergið þrifið við komu og brottför.
Spurt og svarað
- Er tímamismunur við Ísland?
- Ekki yfir veturinn. Kanaríeyjar eru á UTC+0 frá síðasta sunnudegi í október fram í síðasta sunnudag í mars, rétt eins og Ísland allt árið. Yfir sumarið færast eyjarnar á UTC+1 og þá munar einni klukkustund.
- Hversu lengi þarf ég að dvelja?
- Yfir veturinn, nóvember til mars, er lágmarkið einn mánuður. Í apríl, maí og október eru það tvær vikur, og frá júní til september nægir ein vika.
- Þarf ég bíl?
- Ekki dags daglega — miðbær Santa Cruz er í göngufæri og strætókerfið gott. Bíll borgar sig ef þig langar að komast í Anaga, á strendurnar og upp í þorpin á þínum eigin tíma.
- Get ég komið með maka?
- Já. Sex af sjö herbergjum eru með tvíbreiðu rúmi og verðskráin sýnir bæði verð fyrir einn og tvo í herbergi.
- Er netið nógu gott fyrir fundi og símtöl?
- Húsið er sett upp fyrir fjarvinnu: ljósleiðari, skjáir á skrifborðunum, almennileg vinnuborð og rólegri horn þegar þú þarft næði fyrir fund.
- Þarf ég að skrá mig hjá spænskum yfirvöldum?
- Sem EES-ríkisborgari máttu koma og vinna strax. Fari dvölin yfir þrjá mánuði skráir þú þig í útlendingaskrána og færð NIE-númer. Kannaðu nýjustu reglurnar hjá spænskum yfirvöldum áður en þú bókar langa dvöl.
Laust í vetur?
Sendu okkur skilaboð með dagsetningunum sem þú ert að skoða, þá svörum við með því sem er laust. Við tölum ensku og spænsku.